Beint í efni

Lagfæringar á vegi í Ásbyrgi

Á morgun, þriðjudaginn 27. ágúst 2024, ætlar Vegagerðin í viðgerðir á Ásbyrgisveginum, fyrir sunnan tjaldsvæðið og inn í botn Ásbyrgis. Það þarf að holufylla og síðan verður í kjölfarið farið í viðgerðir á malbiki. Áætlað er að holufyllingin taki 1 dag og loka þarf veginum á meðan. Á morgun verður því ekki mögulegt að keyra inn í botn Ásbyrgis.

26. ágúst 2024, kl. 11:16