Formlegt aðsetur Vatnajökulsþjóðgarðs flutt til Hafnar í Hornafirði
Formlegt aðsetur og lögheimili Vatnajökulsþjóðgarðs verður flutt til Hafnar í Hornafirði næsta haust. Frá þessu greindi Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á ríkisstjórnarfundi í morgun. Ákvörðun um flutning aðseturs á landsbyggðina var tekin var í samráði við stjórn þjóðgarðsins og verður kynnt á næstunni á Alþingi.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F71e674e0-a6c0-41ec-878f-d09370f8ae3f_2022%2B04%2B29_Formlegt%2Ba%25C3%25B0setur%2BVatnaj%25C3%25B6kuls%25C3%25BEj%25C3%25B3%25C3%25B0gar%25C3%25B0s%2Bflutt%2Btil%2BHafnar%2B%25C3%25AD%2BHornafir%25C3%25B0i.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Meginstarfsstöðvar Vatnajökulsþjóðgarðs eru staðsettar á Höfn í Hornafirði, Kirkjubæjarklaustri, Skriðuklaustri, í Ásbyrgi, Mývatnssveit og Skaftafelli. Lögheimili þjóðgarðsins hefur verið í Garðabæ og hafa framkvæmdastjóri, fjármálastjóri og þrír aðrir starfsmenn miðlægrar skrifstofu haft starfsstöð þar. Með flutningnum er gert ráð fyrir að starfsstöðin á Höfn verði efld þar sem framkvæmdastjóri mun hafa þar aðalstarfsstöð.
Magnús Guðmundsson núverandi framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs mun 1. september nk. flytjast í starf sérfræðings í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Mun hann m.a. vinna með starfshópi sem vinna mun stöðuskýrslu um þjóðgarða og friðlýst svæði á Íslandi, auk þess að taka þátt í verkefnum á sviði styrkingar og einföldunar á stofnanakerfi ráðuneytisins. Magnús hefur lengi starfað í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs síðastliðin fjögur ár, en þar á undan var hann forstjóri Landmælinga Íslands til fjölda ára.
„Vatnajökull er ekki á höfuðborgarsvæðinu og ég hef aldrei skilið hvers vegna lögheimili þjóðgarðsins er á höfuðborgarsvæðinu. Nú þegar ég er í aðstöðu til breyta þessu þá geri ég það og flyt með því mikilvæg störf á landsbyggðina. Styrking starfsstöðva stofnana ráðuneytisins á landsbyggðinni verður að sama skapi eitt af lykilatriðunum í þeirri vinnu sem fram undan er varðandi styrkingu og einföldun stofnanaskipulags ráðuneytisins,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Vatnajökulsþjóðgarður var stofnaður með lögum árið 2007 og þekur um 15% af yfirborði landsins. Þjóðgarðurinn nær til Vatnajökuls og stórra svæða í nágrenni hans, þar á meðal þjóðgarðanna sem fyrir voru í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum. Land þjóðgarðsins nær til átta sveitarfélaga með um 13.000 íbúa.
Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfa 37 fastir starfsmenn og eru 32 þeirra á starfsstöðvum á landsbyggðinni. Á sumrin bætast við um 80 starfsmenn sem sinna landvörslu, þjónustu og fræðslu til gesta þjóðgarðsins og eru þau störf öll unnin á landsbyggðinni.
Náttúra og menningarsaga Vatnajökulsþjóðgarðs er einstæð á heimsvísu og var hann samþykktur á heimsminjaskrá UNESCO á árinu 2019 og heimsóttu tvær milljónir ferðamanna þjóðgarðinn það ár.