Hr. Mosi
Hr. MOSI er fyndin, skemmtileg og fræðandi teiknimynd, þar sem mosaálfurinn Hr. MOSI sýnir okkur hvernig við - mannfólkið – eigum að breyta hegðun okkar, þannig að við virðum og verndum mosann og annan gróður.
Herra MOSI býr í hraunbreiðum Skaftárhrepps
Hr. MOSI er fyndin, skemmtileg og fræðandi teiknimynd, þar sem mosaálfurinn Hr. MOSI sýnir okkur hvernig við - mannfólkið – eigum að breyta hegðun okkar, þannig að við virðum og verndum mosann og annan gróður.
Þessi stutta teiknimynd er ÁKALL til allra þeirra sem heimsækja eða búa á Íslandi, um að VIRÐA og sýna ÁBYRGÐ gagnvart ÍSLENSKRI náttúru.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði í fjölþjóðlegu samstarfsverkefni sem kallast ASCENT og hefur það markmið að auka fagþekkingu og bæta vinnubrögð við göngustígagerð og uppbyggingu áningastaða með náttúruvernd að leiðarljósi. Á Íslandi leiðir Landgræðsla Ríkisins vinnuna en Skaftárhreppur tekur þátt með sérstaka áherslu á umgengni ferðamanna í Eldhrauni. Bob Aitken, skoskur sérfræðingur, kom hingað til lands og er myndbandið byggt á hugmynd frá honum sem varð til í hópvinnu ASCENT.
Hr. MOSI er borinn og barnfæddur á Kirkjubæjarklaustri í samstarfi VISITKLAUSTUR.IS sem er framleiðandi myndarinnar og fékk styrk til þess frá Umhverfis og atvinnumálaráðuneytinu. Myndina gerði This is LUPINA – grafískt hönnunarstúdíó á Kirkjubæjarklaustri.
Stuttmyndin var heimsfrumsýnd á viðburði Kötlu jarðvangsvikunnar á Kirkjubæjarklaustri þann 30.apríl 2019
Nánari upplýsingar: [email protected]