Íbúafundur um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs í Þingeyjarsveit
Fimmtudaginn 31. mars nk. kl. 20 boðar Vatnajökulsþjóðgarður til fundar í félagsheimilinu Kiðagili í Bárðardal. Markmið fundarins er að kynna starfsemi Vatnajökulsþjóðgarðs og fara yfir þau verkefni sem framundan eru á svæðinu vegna stækkunar þjóðgarðsins á austurafrétt Bárðdæla.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2Ff4b8379d-ce29-40e5-b620-20fa9fd53687_2022%2B03%2B22_%25C3%258Db%25C3%25BAafundur%2Bum%2Bst%25C3%25A6kkun%2BVatnaj%25C3%25B6kuls%25C3%25BEj%25C3%25B3%25C3%25B0gar%25C3%25B0s%2B%25C3%25AD%2B%25C3%259Eingeyjarsveit.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfocalpoint%26fit%3Dcrop%26fp-x%3D0.50%26fp-y%3D0.41%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Allir hjartanlega velkomnir
Dagskrá fundar:
20:00 Anna Þorsteinsdóttir þjóðgarðsvörður Vatnajökulsþjóðgarðs setur fundinn.
20:05 Guðlaugur Þór Þórðarson Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra
20:15 Magnús Guðmundsson, framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs.
- Almennar upplýsingar um þjóðgarðinn.
20:25 Ingibjörg Halldórsdóttir, lögfræðingur Vatnajökulsþjóðgarðs.
- Stjórnskipulag og hlutverk þjóðgarðsins.
20:40 Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir, verkefnastjóri skipulags- og öryggismála hjá Vatnajökulsþjóðgarði.
- Gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir austurafrétt Bárðdæla.
20:55 Árni Bragason, landgræðslustjóri.
- Grólind, endurheimt vistkerfa og aðkoma bænda.
21:05 Eydís Líndal Finnbogadóttir, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands.
- Verndargildi austurafréttar Bárðdæla og vöktun náttúruverndarsvæða.
Umræður
22:00 Áætluð lok fundar