Laus störf: Umsjónarmaður fasteigna og tækja á suðursvæði
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf umsjónarmanns fasteigna og tækja á suðursvæði laust til umsóknar.
21. maí 2019
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2Fab7c0479-cd5c-4059-a9b9-f164b3117801_2019%2B04%2B15-frettir-laus%2Bstorf-umsjonarmadur%2Bfasteigna.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir starf umsjónarmanns fasteigna og tækja á suðursvæði laust til umsóknar. Um er að ræða fullt starf og heyrir staðan undir þjóðgarðsvörð suðursvæðis. Meginstarfsstöð er í Skaftafelli en einnig er um að ræða verkefni á öðrum svæðum Vatnajökulsþjóðgarðs á suðursvæði, s.s. á Jökulsárlóni og Höfn.