Laust starf: Sérfræðingur á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs
Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir laust til umsóknar starfs sérfræðings á vestursvæði þjóðgarðsins með aðsetur á Kirkjubæjarklaustri.
14. apríl 2023

Viltu vinna við fjölbreytt og skemmtilegt starf allt árið um kring? Vatnajökulsþjóðgarður auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á vestursvæði þjóðgarðsins með aðsetur á Kirkjubæjarklaustri. Starfsstöðvar vestursvæðis eru Skaftárstofa á Kirkjubæjarklaustri, Nýidalur, Tungnaáröræfi/Hrauneyjar, Eldgjá, Langisjór og Lakagígar. Starf sérfræðings heyrir beint undir þjóðgarðsvörð á svæðinu.