Öryggi ferðafólks og Mannamót
Vikan sem leið var viðburðarík fyrir starfsfólk þjóðgarðsins og það tók þátt í tveimur viðburðum. Um er að ræða málstofu á vegum Ferðamálastofu og Félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi (AIMG) annars vegar og Mannamót Markaðsstofanna hins vegar.
![Starfsfólks Vatnajökulsþjóðgarðs á Mannamóti 2023: Sigrún Sigurgeirsdóttir umsjónarmaður verslunar í Skaftafelli, Steinunn Hödd Harðardóttir þjóðgarðsvörður á suðursvæði, Þórhallur Jóhannsson yfirlandvörður og Guðrún Stefanía Vopnfjörð Ingólfsdóttir yfirlandvörður. Mynd: Sigrún Sigurgeirsdóttir.](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F41b70efa-286a-4e4b-b115-c768ed5e6d1a_2023%2B01%2B23-frettir-mannamot.jpeg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfocalpoint%26fit%3Dcrop%26fp-x%3D0.47%26fp-y%3D0.45%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Miðvikudaginn 18. janúar var haldin málstofa á Grand Hótel í Reykjavík um öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður. Steinunn Hödd Harðardóttir þjóðgarðsvörður á austurhluta suðursvæðis og Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs töluðu á málstofunni um tækfærin sem leynast í Vatnajökulsþjóðgarði, öryggismál og atvinnustefnu Vatnajökulsþjóðgarðs.
Upptöku frá streyminu má nálgast hér. Fyrirlestur Steinunnar og Hönnu Kötu hefst á mínútu 70 og tekur um 15 mínútur.
Mannamót Markaðsstofa allra landshluta var haldinn fimmtudaginn 19. janúar í Kórnum í Kópavogi. Vatnajökulsþjóðgarður hefur tekið þátt undanfarin ár og hefð skapast hjá starfsfólki að skipta þátttöku á milli svæða. Í ár var komið að starfsfólki Skaftafells, Jökulsárlóns og Hafnar að kynna sig og þjóðgarðinn allan. Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem þjónustuaðilar og fyrirtæki á landsbyggðinni fá tækifæri til að kynna sína sig og vöruframboð sitt fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu.
Gestir Vatnajökulsþjóðgarðs eru margir viðskiptavinir íslenskrar ferðaþjónustu. Gott samtal og þekking milli ferðaþjónustunnar og þjóðgarðsins skiptir því miklu máli til að ná að uppfylla markmið þjóðgarðsins um verndun náttúru- og menningarminja, aðgengi, upplifun og fræðslu um náttúru- og menningarverðmæti hans.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F63c39aeb-32d2-4212-91b5-8f9d4fdecc3f_2023%2B01%2B23-frettir-oryggi%2Bog%2Bmannamot-steinunn.png%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1557%26h%3D673&w=3840&q=80)
Skjáskot úr fyrirlestri Steinunnar Haddar Harðardóttur, þjóðgarðsvarðar á suðursvæði, á málstofu um "Öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður".
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F9702e0cd-cb60-4d51-88a7-edae1f4d3e9c_2023%2B01%2B23-frettir-oryggi%2Bog%2Bmannamot-johanna%2Bkatrin.png%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1553%26h%3D684&w=3840&q=80)
Skjáskot úr fyrirlestri Jóhönnu Katrínar Þórhallsdóttur, sviðsstjóra á sviði stefnu og starfshátta, á málstofu um "Öryggi ferðamanna við krefjandi aðstæður".