Beint í efni

Tilkynning vegna slyss á Breiðamerkurjökli

26. ágúst 2024

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum varð hörmulegt slys á Breiðamerkurjökli í gær, þegar ísveggur hrundi á sama tíma og ferðamenn voru þar í skipulagðri hópferð.

Vatnajökulsþjóðgarður harmar að slysið skuli hafa átt sér stað. Hugur starfsfólks Vatnajökulsþjóðgarðs er hjá þeim sem eiga um sárt að binda vegna slyssins. Þá vill þjóðgarðurinn þakka þeim fjölmörgu viðbragðsaðilum sem sinntu störfum við afar krefjandi aðstæður og öðrum sem lögðu aðgerðunum lið.

Þjóðgarðurinn hefur farið þess á leit við þá ferðaþjónustuaðila sem við á, að þeir fari ekki í íshellaferðir á svæði þjóðgarðsins að svo stöddu. Allir hafa brugðist vel við þeirri beiðni.


Rannsókn málsins er í höndum lögreglu og hún veitir allar upplýsingar sem lúta að rannsókninni.

Heimildir Vatnajökulsþjóðgarðs til að loka fyrir umferð um svæðið eru takmarkaðar. Vatnajökulsþjóðgarður og Ferðamálastofa hafa þegar hafið samtal við hlutaðeigandi aðila innan ferðaþjónustunnar og stjórnsýslunnar um mögulegar úrbætur og aðgerðir vegna þessa hörmulega slyss.

Rekstraraðilar sem hafa leyfi til íshellaferða og jöklagangna innan þjóðgarðsins þurfa að vera með eigin öryggisáætlun og einnig að vera með leyfi sem ferðasali dagsferða frá Ferðamálastofu. Einnig þarf að uppfylla gildandi gæðaviðmið varðandi íshellaskoðun og gönguferðir í fjallendi við vetraraðstæður og á jöklum.

Til skoðunar hefur verið að gera enn meiri kröfur til rekstraraðila sem starfa í þjóðgarðinum og hefur sú vinna verið unnin í nánu samstarfi við hagsmunaaðila. Von er á tillögum síðar í haust.

---

Til upplýsinga:

Auglýsing til rekstraraðila á vef Vatnajökulsþjóðgarðs: Minnum á umsóknarfrest fyrir atvinnutengda starfsemi í Vatnajökulsþjóðgarði - Vatnajökulsþjóðgarður

Gæðaviðmið Vakans fyrir íshellaskoðun: https://www.vakinn.is/static/files/Vidmid2022/5utg2022/228-ishellaskodun-3.-utg.-2022.docx