Umsóknarfrestur framlengdur á sumar- og heilsársstörfum
Umsóknarfrestur hefður verið framlengdur á sumar- og heilsársstörfum hjá Vatnajökulsþjóðgarði og er nú til og með 19. febrúar næstkomandi.

Viltu upplifa sumar í einstakri náttúru?
Í Vatnajökulsþjóðgarði starfar fjölbreyttur hópur af fólki um allt land. Landvarsla er mikilvægur hlekkur í starfi þjóðgarðsins og sinna landverðir eftirliti innan hans og á friðlýstum svæðum. Störf landvarða eru fjölbreytt og felast meðal annars í daglegu eftirliti innan þjóðgarðsins og á friðlýstum svæðum. Verkefnin eru með ólíkum áherslum eftir starfsstöðvum en eiga það sameiginlegt að vera skemmtileg og lífleg.
Auglýst er eftir landvörðum á láglendi og hálendi í sumarstörf ásamt þjónustufulltrúum í fjölbreytt störf í gestastofum og á tjaldsvæðum þjóðgarðsins. Einnig er leitast eftir landvörðum í heilsársstöður á Breiðamerkursandi (Jökulsárlóni), í Skaftafelli og í Jökulsárgljúfrum (Ásbyrgi)