Vatnajökulsþjóðgarður á heimsminjaskrá UNESCO
Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO).
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2Fdd0975d3-f324-4df6-bf57-8315f3eda592_2019%2B07%2B05-frettir-vjth%2Ba%2Bheimsminjaskra.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Vatnajökulsþjóðgarður er kominn á heimsminjaskrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO). Ákvörðun þess efnis var tekin á fundi heimsminjanefndar UNESCO í Bakú í Aserbaídsjan í dag á grundvelli þess að þjóðgarðurinn hafi að geyma einstakar náttúruminjar. Þar með er staðfest að náttúra þjóðgarðsins og friðlandsins í Lónsöræfum teljist hafa einstakt gildi fyrir mannkynið. Svæðið er einstakt á heimsvísu vegna sköpunarkrafta náttúrunnar, samspils elds og íss og þeirrar jarðfræðilegu fjölbreytni sem af því leiðir og er sýnileg á yfirborði þjóðgarðsins. Landsvæðið sem um ræðir er afar stórt og um 12% Íslands eru þannig komin á heimsminjaskrá UNESCO sem einstakar náttúruminjar.
Tilnefningin sem send var inn í janúar 2018 var samþykkt og með henni varð Vatnajökull hluti af heimsminjaskránni fyrir náttúruverðmæti. Jökulsárgljúfur og Ásbyrgi eru undanskilin í tilnefningunni að þessu sinni vegna þess að ekki er lokið vinnu við friðlýsingu, en svæðið getur komið inn síðar. Í tilnefningunni er áhersla lögð á rekbeltið, heita reitinn undir landinu og eldstöðvakerfið í gosbeltunum ásamt samspili elds og íss sem einstakt er talið á heimsvísu. Undirbúningur vegna tilnefningar Vatnajökulsþjóðgarðs hófst 2016 en þá var sérstakri verkefnastjórn falið að halda utan um og stýra vinnu við tilnefninguna í samræmi við reglur UNESCO. Verkefnið var unnið í samvinnu við Vatnajökulsþjóðgarð og samráð haft við sveitarstjórnir á viðkomandi svæðum. Skráning Vatnajökuls á heimsminjaskrá er mjög mikilvægt skref í verndun og viðurkenningu svæðisins á heimsvísu. Staðir á heimsminjaskrá draga gjarnan að aukinn fjölda ferðamanna þannig að mikilvægi viðkomandi staða eykst í þjóðhagslegu tilliti. Heimsminjaskráin er talin vera afar öflugt tæki til minja- og náttúruverndar, ekki síður en til uppbyggingar vandaðrar ferðaþjónustu í hverju landi. Þingvellir voru skráðir á heimsminjaskrá árið 2004 sem menningarminjar og Surtsey árið 2008.
Til hamingju Vatnajökull og til hamingju Ísland!
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2Fbc8aa210-a4ad-40d7-b033-0ee0856f569d_2019%2B07%2B05%2B-%2Bfrettir-unesco-samsett.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D800%26h%3D800&w=1920&q=80)