Vatnajökulsþjóðgarður og heimsmarkmiðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun voru samþykkt af fulltrúum allra aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna í september árið 2015. Markmiðin, sem gilda á tímabilinu 2016-2030, eru 17 talsins með 169 undirmarkmið og taka bæði til innanlandsmála sem og alþjóðasamstarfs á gildistímanum.
7. desember 2020
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F47d9bb2e-da96-4dae-8f8e-cd245c395850_2020%2B12%2B07_Vatnaj%25C3%25B6kuls%25C3%25BEj%25C3%25B3%25C3%25B0gar%25C3%25B0ur%2Bog%2Bheimsmarkmi%25C3%25B0in.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Heimsmarkmið eru frábær
Starfssemi Vatnajökulsþjóðgarðs er víðfeðm og nær yfir fjölbreytt málefni. Heimsmarkmiðin falla því vel að starfinu og var unnið útfrá yfirlýstum markmiðum garðsins við val á áherslum og undirmarkmiðum innan þeirra. Markmið þjóðgarðsins samkvæmt stjórnunar- og verndaráætlun má lesa nánar um hér.
Tengingar Vatnajökulsþjóðgarðs við heimsmarkmiðin má finna hér og mun þjóðgarðurinn þróa tengingarnar og sjálfbærnivísa áfram.