Vinna hafin við gerð tillögu að stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Breiðamerkursand
Miðvikudaginn 16. janúar sl. gerði Vatnajökulsþjóðgarður samninga við þrjár rannsóknarstofnanir á Hornafirði varðandi vinnu og ráðgjöf við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Breiðamerkursand.
![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F90cd83e7-fcfd-40aa-972c-717b072410a9_2019%2B01%2B22-frettir-vinna%2Bhafin%2Bvi%25C3%25B0%2Bsogv%2Bbrm.jpg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1640%26h%3D820&w=3840&q=80)
Miðvikudaginn 16. janúar sl. gerði Vatnajökulsþjóðgarður samninga við þrjár rannsóknarstofnanir á Hornafirði varðandi vinnu og ráðgjöf við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Breiðamerkursand. Ráðgjafahópurinn samanstendur af starfsmönnum Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði, Náttúrustofu Suðausturlands og Nýheima þekkingarseturs. Það sýnir styrk og fjölbreytni í atvinnulífi Hornafjarðar að hafa til staðar fagaðila heima í héraði sem geta tekið að sér verkefni sem þessi.
Breiðamerkursandur varð hluti af Vatnajökulsþjóðgarði við friðlýsingu svæðisins 25. júlí 2017. Stjórnunar- og verndaráætlun er eitt meginstjórntæki þjóðgarðsins og verkfæri til stefnumótunar og ákvarðanatöku. Samkvæmt lögum þjóðgarðsins er það á ábyrgð svæðisráða að koma með tillögur að stjórnunar- og verndaráætunum. Í ljósi umfangs vinnunar á Breiðamerkursandi fékk svæðisráð suðursvæðis ráðgjafahópinn á Hornafirði til liðs við sig og umhverfis- og auðlindaráðuneytið tryggði fjármögnun vinnunnar. Svæðisráð mun vinna reglulega með ráðgjafahópnum meðan á ferlinu stendur. Svæðisráðið og ráðgjafahópurinn munu enn fremur leita eftir frekari sérfræðiaðstoð eftir því sem þörf gerist
Vinna við gerð tillögu að stjórnunar- og verndaráætlun er samráðsferli sem felur í sér viðtöl við hagaðila, rýnihópa, íbúa- og kynningarfundi. Að auki er gagnaöflun, kortagerð, o.fl. hluti af ferlinu. Íbúar sveitarfélagsins Hornafjarðar eru hvattir til að fylgjast vel með tilkynningum og ferli vinnunnar á næstu mánuðum. Tímaáætlun gerir ráð fyrir að tillaga svæðisráðs verði lögð fyrir stjórn þjóðgarðsins í upphafi næsta árs.
Samráðsgátt um verkefnið verður opnuð innan skamms á vefsíðu Vatnajökulsþjóðgarðs.