![](/_next/image?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Fvatnajokulsthjodgardur%2F0361aab5-225f-4418-a166-1133bde235b2_Skaftafellsstofa_23_SS.jpeg%3Fauto%3Dformat%26crop%3Dfaces%252Cedges%26fit%3Dcrop%26w%3D1100%26h%3D724&w=3840&q=80)
Skaftafellsstofa
Gestastofan í Skaftafelli er opin allan ársins hring. Þar veita landverðir og þjónustufulltrúar gestum fræðslu og upplýsingar um náttúrufar Skaftafells, gönguleiðir, gistingu og afþreyingu í næsta nágrenni. Í Skaftafellsstofu er minjagripaverslun með áherslu á fræðslu og handverk úr byggðarlaginu.
Opnunartímar
Janúar - Febrúar: 10-17
Mars - Maí: 9-17
Júní - Ágúst: 9-19
September: 9-18
Október: 9-18
Nóvember: 9-17
Desember: 10-17
Tjaldsvæði
Í Skaftafelli eru afmörkuð stæði fyrir húsbíla og ferðavagna og rúmgott svæði ætlað tjöldum. Ekki er hægt að taka frá stæði.
Veitingasalan í Skaftafelli
Opnunartímar
Október: 9:00 -18:00
Nóvember: 9:00-17:00
Desember: 10:00-17:00
- Veitingasalan er lokuð frá 17. desember 2023 til og með 5. janúar 2024