Starfsstöðvar
Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarðsins.

Að staðaldri starfa um 50 manns hjá þjóðgarðinum en yfir sumartímann fer starfsmannafjöldi yfir 100. Þjóðgarðurinn rekur nú fimm gestastofur. Þær eru: Gljúfrastofa í Ásbyrgi, Gígur gestastofa við Mývatn, Snæfellsstofa á Skriðuklaustri, Skaftafellsstofa í Skaftafelli og Skaftárstofa á Kirkjubæjarklaustri.
Yfir sumartímann teygir starfsemi þjóðgarðsins sig vítt um garðinn en á veturna, þegar hálendinu er lokað, einskorðast hún við færri staði. Á kortinu hér sjást gestastofur, landvörslu- og starfsstöðvar þjóðgarðsins. Aðsetur þjóðgarðsins er á Höfn. Margvíslegri stoðþjónustu er sinnt frá skrifstofum á Höfn, Fellabæ, Akureyri og Reykjavík. Krafturinn á bak við þjóðgarðinn liggur ekki einungis í einstakri náttúru, heldur einnig í kröftugu og ánægðu starfsfólki.
Gestastofur og skrifstofa: Símanúmer og netföng
Gestastofa/skrifstofa | Heimilisfang | Símanúmer | Netfang |
---|---|---|---|
Gígur gestastofa | Skútustöðum, 660 Mývatn | 470 7110 | gigur@vjp.is |
Gljúfrastofa | Ásbyrgi, 671 Kópasker | 470 7100 | asbyrgi@vjp.is |
Skaftafellsstofa | Skaftafelli, 785 Öræfi | 470 8300 | skaftafell@vjp.is |
Skaftárstofa | Sönghól, 881 Kirkjubæjarklaustur | 470 0409 | klaustur@vjp.is |
Skrifstofa | Litlubrú 2, 780 Höfn | 575 8400 | vjp@vjp.is |
Snæfellsstofa | Skriðuklaustri, 701 Egilsstaðir | 470 0840 | snaefellsstofa@vjp.is |
Landvörslustöðvar: Símanúmer og netföng
Landvörslustöð | Símanúmer | Netfang |
---|---|---|
Askja (Drekagil) | 842 4357 | gigur@vjp.is |
Breiðamerkursandur (Jökulsárlón) | 842 4355 | jokulsarlon@vjp.is |
Eldgjá (Hólaskjól) | 842 4379 | klaustur@vjp.is |
Herðubreiðarlindir | 842 4357 | gigur@vjp.is |
Hrauneyjar | 842 4238 | klaustur@vjp.is |
Hvannalindir | 842 4368 | snaefellsstofa@vjp.is |
Kverkfjöll | 842 4369 | snaefellsstofa@vjp.is |
Laki | 842 4358 | klaustur@vjp.is |
Nýidalur | 842 4377 | klaustur@vjp.is |
Snæfell | 842 4367 | snaefellsstofa@vjp.is |
Landvörslustöðvar
Landvörslustöðvar eru aðsetur landvarða og jafnframt miðstöðvar fyrir upplýsingjagjöf og fræðslu í formi gönguferða eða annarra miðla eftir aðstæðum.
Landvörslustöðvar eru staðsettar þar sem tryggt er að þær þjóni hlutverki sínu og nái til gesta sem fara um svæðið. Þaðan sinna landverðir daglegu eftirliti innan þjóðgarðsins og á friðlýstum svæðum í umsjá hans. Landvörslustöðvar geta verið reknar í samstarfi við fleiri aðila og þar sem þess er kostur er reynt að nýta bæði húsakost og aðra þjónustu sem þegar er fyrir hendi.
Hlutverk landvarða og annarra starfsmanna getur verið með ólíkum áherslum á milli landvörslustöðva. Það sama á við um aðbúnað starfsmanna á hverjum stað.