Beint í efni

Viðauki við stjórnunar- og verndaráætlun: Hoffellslambatungur

Unnið er að gerð viðauka fyrir Hoffellslambatungur. Það sem um ræðir er það svæði sem bættist við Vatnajökulsþjóðgarð í júní 2021.

Gagnaöflun og samtal

Nú er unnið að mótun ákvæða fyrir stjórnunar- og verndaráætlun. Í því felst m.a. gagnaöflum og samtal við fagstofnanir, íbúa og aðra hagsmunaaðila, um samspil á verndun og nýtingu þeirra gæða sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Liður í þeirri vinnu er opinn íbúafundur:

Opinn íbúafundur í Árnanesi í Nesjum, fimmtudaginn 28. nóvember kl 17.00-18.30

Svæði afmarkað með gulum línum: Svæði sem bættist við Vatnajökulsþjóðgarð árið 2021