Beint í efni

Leyfi

Ýmis starfsemi innan Vatnajökulsþjóðgarðs krefst leyfis eins og rannsóknir, kvikmynda- og auglýsingagerð og viðburðahald.

Samstarf Vatnajökulsþjóðgarðs við vísindasamfélagið er bæði lögbundið og afar verðmætt. Unnið er að fjölþættum rannsóknum í síkvikri náttúru Vatnajökulsþjóðgarðs ár hvert. Þjóðgarðurinn er einnig fjölsóttur vettvangur fyrir kvikmynda- og auglýsingatökur og notkun ferðafólks á flygildum er sífellt vinsælli.

Markmið með stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs samkvæmt 2. gr. laga um þjóðgarðinn er að:

  • Vernda náttúru svæðisins, svo sem landslag, lífríki, jarðmyndanir og menningarminjar.
  • Gefa almenningi kost á að kynnast og njóta náttúru og sögu svæðisins.
  • Stuðla að rannsóknum á svæðinu, fræða um það og ýta undir aukinn skilning almennings á gæðum og sérstöðu svæðisins.
  • Leitast við að styrkja byggð og atvinnustarfsemi í nágrenni þjóðgarðsins, m.a. með því að hvetja til sjálfbærrar nýtingar gæða svæðisins.

Framangreind markmið eru leiðarljós í öllu starfi þjóðgarðsins og stefnumótun. Frumskilyrði er ávallt að starfsemin samræmist þessum markmiðum.

Reglur um notkun flygilda (dróna) í afþreyingarskyni

Almennt er notkun flygilda (dróna) í afþreyingarskyni heimil í Vatnajökulsþjóðgarði og fylgja skal almennum reglum Samgöngustofu varðandi notkun flygilda. Á nokkrum svæðum í þjóðgarðinum gilda þó svæðisbundnar takmarkanir (almennar og svæðisbundnar).

Kvikmynda- og auglýsingaleyfi í atvinnuskyni

Þeir sem hafa hug á að stunda kvikmyndagerð, auglýsingagerð eða aðra slíka starfsemi innan þjóðgarðsins skulu fylla út umsókn um leyfi.

Sækja skal um leyfi með minnst 30 daga fyrirvara.Innheimt er fyrir kvikmynda- og auglýsingaleyfi samkvæmt gjaldskrá Vatnajökulsþjóðgarðs.

Rannsóknaleyfi

Þeir sem hafa hug á að stunda rannsóknir í þjóðgarðinum skulu fylla út umsókn um leyfi og senda hana til ábyrgðaraðila umsókna. Sækja skal um leyfi með minnst 30 daga fyrirvara.

Viðburðahald

Hér er hægt að sækja um leyfi til þess að halda aðra viðburði en fjallað er um hér að ofan. Dæmi um viðburði geta verið: Íþróttamót, samkomur (brúðkaup, afmæli, ættarmót o.s.frv.), tónleikar, kvikmyndasýningar o.s.frv. Sækja skal um leyfi vegna viðburðahalds með eins löngum fyrirvara og umsækjanda er unnt. Í þeim tilfellum þar sem þjóðgarðurinn þarf að leggja til starfsfólk gæti verið innheimt gjald fyrir viðburðaleyfi samkvæmt gjaldskrá Vatnajökulsþjóðgarðs.

Verðskrá Vatnajökulsþjóðgarðs

Hægt er að kynna sér verðskrá Vatnajökulsþjóðgarðs hér vegna útgáfu leyfa

Hagnýtar upplýsingar áður en sótt er um leyfi